Húsaskóli
Grunnskóli, 1.-7. bekkur
Dalhús 41
112 Reykjavík
Skóladagatal Húsaskóla
Hér finnur þú skóladagatal Húsaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn.
Matur í grunnskólum
Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili.
Um Húsaskóla
Húsaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. – 7. bekk. Skólinn stendur við Dalhús 41 í Reykjavík. Á þessu skólaári eru nemendur 144 og starfsmenn um 30 talsins. Einkunnarorð skólans eru jákvæðni – virðing – samvinna
Frístundaheimilið Kastali er fyrir börn í 1.-4 bekk í Húsaskóla og félagsmiðstöðin Fjörgyn býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga.
Skólastjóri er Katrín Cýrusdóttir
Aðstoðarskólastjóri er Jóna Rut Jónsdóttir
Deildarstjóri stoðþjónustu er Jóhanna Lovísa Gísladóttir
Farsæld barna
Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.
Tengiliður Húsaskóla er: Jóhanna Lovísa Gísladóttir
Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is
Er barnið þitt að byrja í grunnskóla?
Á þessari síðu færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.
Skólastarfsemi
Starfsáætlun
Hvað er framundan í Húsaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira.
Skólanámskrá
Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf Húsaskóla? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í námi og starfi.
Skólahverfi Húsaskóla
Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Húsaskóli er hverfisskóli fyrir íbúa við eftirtaldar götur: Baughús, Dalhús, Gagnvegur, Garðhús, Grundarhús, Hlíðarhús, Miðhús, Suðurhús, Sveighús, Vallarhús, Veghús og Vesturhús.
Foreldrasamstarf
Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.