|
mánudagur, 06 febrúar 2012 14:00 |
|
Framhaldsskólakynning verður haldin fimmtudaginn 9.febrúar næstkomandi í Borgarholtsskóla kl. 17:00-18:30. Þar mun foreldrum og nemendum í 10. bekk gefast gott tækifæri til að hitta fulltrúa fjölmargra framhaldsskóla og fá upplýsingar um inntökuskilyrði, námsbrautir, kennslufyrirkomulag, félagslíf og aðbúnað skólanna. Að þessu sinni munu fulltrúar þrettán framhaldsskóla kynna sína skóla: Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Iðnskólinn í Hafnarfirði, Kvennaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Hamrahlíð, Menntaskólinn Hraðbraut, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntskólinn við Sund, Verzlunarskóli Íslands, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Tækniskólinn, skóli atvinnulífsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
miðvikudagur, 01 febrúar 2012 11:58 |
|
Hópur sjö nemenda frá Nagyn, félagsmiðstöð Húsaskóla áttu annað af tveimur sigurlögum SÖNGYN, en undankeppni milli grunnskóla í Grafarvogi fyrir Samfés var haldin í Rimaskóla í síðustu viku. Þetta lag verður því annað laganna sem verða framlag Gufunesbæjar á söngkeppni SamFestingsins í Laugardalshöll í beinni í sjónvarpinu þann 3. mars 2012. Slóðin á lagið er hér http://www.youtube.com/watch?v=riCx5OmJXUo
Horfa á myndbandið
|
|
miðvikudagur, 01 febrúar 2012 11:38 |
 Sá fræðandi og skemmtilegi viðburður átti sér stað í landafræðitíma í 8. bekk skólans á dimmum vetrarmorgni í lok janúar að Þóra Árnadóttir jarðeðlisfræðingur ( móðir Áslaugar í 8.bekk ) kom og fræddi nemendur um jarðskjálftasvæði jarðar, einkenni/orsök jarðskjálfta og þær hamfarir sem verða oft af völdum þeirra. Einnig upplýsti hún nemendurna um eldgos og eldingar. Sýndi hún myndband af hnettinum og þverskurði hans. Nemendum fannst þetta mjög áhugavert og spurðu Þóru margra spurninga. Kristín A. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 80 |